Þann 9. júní verður Geislahvelfingin sett aftur upp á útisvæði Menningarhúsanna í Kópavogi. Gestum og gangandi er velkomið að fygljast með og hjálpa. Á sama tíma verður barnvænn viðburður á Gerðarsafni um Gerði Helgadóttur í sambandi við yfirlitssýninguna sem stendur yfir í sumar.
